Terms of service
Skilmálar og skilyrði – K&Ó – personulegt.is
Síðast uppfært: 23.07.2025
Vinsamlega lestu eftirfarandi skilmála vandlega áður en þú pantar hjá K&Ó – personulegt.is. Með því að nota síðuna og/eða panta vöru samþykkir þú þessi skilyrði.
Almennar upplýsingar
Vefverslunin K&Ó – personulegt.is er rekin af Karítas Einarsdóttur, kennitala: 080585-3069. Hægt er að hafa samband í gegnum netfangið personulegt.is@gmail.com.
Vörur og sérmerking
K&Ó sérhæfir sig í sérsniðnum vörum, svo sem áletruðum skartgripum og öðrum persónulegum gjöfum. Vörur eru afgreiddar eftir pöntun með þeim texta, myndum eða með þeirri áletrun sem viðskiptavinur velur. Við hvetjum alla viðskiptavini til að yfirfara texta og upplýsingar áður en pöntun er staðfest, þar sem ekki er hægt að breyta pöntun eftir að hún hefur verið sett í vinnslu.
Afhending og sendingarkostnaður
Afhendingartími er yfirleitt 1-3 virkir dagar innanlands, en getur verið lengri við álag eða ef um flóknar pantanir er að ræða. Við bjóðum upp á að senda vörur með Dropp. Sendingarkostnaður bætist við í lok pöntunar og fer eftir vali viðskiptavinar.
Skil og endurgreiðslur
Vegna eðlis vörunnar – þar sem um er að ræða sérmerktar, sérpantaðar vörur – gildir engin skilaréttur eftir að pöntun hefur verið staðfest, nema um galla eða mistök í framleiðslu sé að ræða af okkar hálfu. Ef vara berst gölluð eða röng, biðjum við viðskiptavini að hafa samband við okkur innan 7 daga frá móttöku með mynd af vörunni og lýsingu á vandamálinu.
Okkur er annt um þjónustuupplifun viðskiptavina og viljum því endilega fá upplýsingar í tölvupósti á netfangið personulegt.is@gmail.com ef viðskiptavinur hefur einhverjar athugasemdir vegna vöru, í framhaldinu reynum við að leysa úr því í sameiningu.
Greiðslur
Greiðsla fer fram í gegnum örugga greiðslugátt hjá Straumi ehf, en einnig er hægt að greiða með greiðslulausn Netgíró. Verð eru gefin upp í íslenskum krónum (ISK).
Við áskiljum okkur þann rétt að breyta vöruverði án fyrirvara.
Trúnaður og persónuvernd
Við virðum friðhelgi þína og notum eingöngu þær persónuupplýsingar sem þú gefur upp til að afgreiða pöntun og halda utan um viðskiptasamband. Upplýsingar eru ekki afhentar þriðja aðila nema samkvæmt lögum eða til að sinna þjónustu (t.d. sendingaraðila).
Höfundarréttur og notkun efnis
Viðskiptavinur ber ábyrgð á því að þau gögn (t.d. myndir eða texti) sem send eru til áletrunar brjóti ekki gegn höfundarétti.
Breytingar á skilmálum
Við áskiljum okkur rétt til að breyta þessum skilmálum hvenær sem er. Breytingar taka gildi þegar þær eru birtar á vefnum. Við hvetjum notendur til að skoða reglulega uppfærða skilmála.
Lög og varnarþing
Íslensk lög skulu gilda um viðskiptaskilmála þessa. Rísi ágreiningur milli aðila skal leitast við að leysa hann með samkomulagi. Ef ekki næst samkomulag skulu ágreiningsmál rekin fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.